Ég á fjölskyldumeðlim sem fékk hjól hjá Fjölskylduhjálp og sá þá að það voru mörg hjól sem átti að gefa en voru ósamsett,“ segir Garðar Garðarsson smiður og sjálfboðaliði Fjölskylduhjálpar. Garðar hefur boðist til að lappa upp á fjölda hjóla sem gefa á ungum sem öldnum Reykvíkingum. Alls eru rúmlega fimmtíu hjól sem stendur til að úthluta en þegar hefur sextíu hjólum verið úthlutað á vegum Fjölskylduhjálpar í Reykjanesbæ.
Það var Barnahjálp sem safnaði notuðum hjólum með það í huga að þau yrðu gefin til betri nota. Garðar er smiður að mennt en án atvinnu. Hann segist vera að undirbúa eigin rekstur og sé kominn nokkuð á stað. Meðfram því að byggja upp reksturinn langi honum að leggja sitt af mörkum. „Ég er bara handlaginn og vildi láta gott af mér leiða. Þarna er færi á að gleðja fullt af börnum.“ Garðar er ekki kvíðinn fyrir verkinu. Aðspurður hvort hann þiggi ekki aðstoð við viðgerðirnar ef einhverjir bjóði sig fram svaraði hann einfaldlega; „Jújú.“
Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar segir í samtali við DV að líklega þurfi tvo til þrjá viðgerðarmenn í viðbót enda sé um nokkra vinnu að ræða. Þá segir hún ljóst að þörf sé á einhverjum varahlutum og aðföngum til viðgerðanna. Ásgerður biðlar því til þeirra sem geta látið eitthvað slíkt að hendi rakna að hafa samband við Fjölskylduhjálpina. „Þetta mun náttúrlega fara bara einn tveir og Bingó ef einhverjir eiga fleiri hjól þá tökum við þeim. Við viljum líka biðla til heildsala sem og smásala að aðstoða okkur,“ segir Ásgerður.
„Ætli ég hefjist ekki handa um helgina,“ segir Garðar aðspurður um hvenær megi vænta þess að hann byrji. „Ég veit þá betur hvað þarf að gera og hverslags varahluti þarf. Þá sé ég líka hvað þetta tekur allt langan tíma,“ segir Garðar.
Allar upplýsingar um hvernig nálgast má Fjölskylduhjálp eða láta eitthvað að hendi rakna má finna á vef samtakanna eða hringja í síma 892-9603